 |
www.tritla.is Umræður í Gæludýrabúðinni Trítlu
|
| Sjá síðustu þræði :: Sjá næstu þræði |
| Höfundur |
Skilaboð |
~*Vigdís*~ Umsjón Yfir Vatnadýrum


Skráður þann: 25 Mar 2003 Innlegg: 7908 Staðsetning: Grafarholt Aldur:29ára
|
Innlegg: Lau Des 05, 2009 2:40 pm Titill: Góðir Netsiðir |
|
|
Hvað eru góðir netsiðir?
Þegar talað er um góða netsiði er átt við framkomu þín á netinu og þær aðgerðir
sem þú gerir, allt sem þú lætur frá þér á netinu endurspeglar þig.
Kom þú fram við náungan eins og þú villt að hann komi fram við þig
Farið varlega í gagngríni á persónu einhvers, það er tvennt ólíkt að rökræða um
skoðanir eða umræðuefni heldur en um spjallverjan sjálfann sem einstakling,
það er alltaf sárt að fá gagngríni á persónu sína alveg sama þótt það sé
sagt á netinu eða beint framan í mann.
Heitt í hamsi
Okkur getur öllum orðið heitt í hamsi þegar rökræður eiga sér stað,
góð regla er að lesa tvisvar til þrisvar yfir innleggin sín áður en maður
sendir þau, til að vera viss um að ekkert móðgandi eða særandi sé í þeim,
ef maður gerir mistök er mikilvægt að viðurkenna þau en ekki láta sem
ekkert hafi í skorist, það er líka mjög særandi.
Fyrst og fremst muna: Aðgát skal höfð í nærveru sálar
Flóðpóstur / UPP
Notið , hnappinn frekar enn að búa til nýtt innlegg strax á eftir næsta.
Þetta er óþarfi og lengir þráðin óþarflega, miklu skilvirkara og snyrtilegra er
að breyta innlegginu á undan. Forðist einnig að skrifa óþarfa pósta eins og t.d.
eitt orð í innleggi. Óþarfi er einnig að skrifa ,,takk” eftir hverju einasta hrósi
gefið er fyrir innlegg, einungis ,,Oki” eða innlegg með broskarli, ekki er vel
liðið að verið sé að ,,uppa" auglýsingarnar sínar þar sem slík innlegg innihalda
ekkert þarft fyrir umræðu. Hæglega er hægt að eyða fyrra innlegginu sínu
og setja sama textann í nýtt innlegg.
Auglýsingin þín er því efst og blikkar á ný án þess að hún sé troðfull af
innihaldslausum ,,upp" og þú hefur komið í veg fyrir flóðpóstun.
Allar tegundir af ,,upp" eru óvelkomnar t.d. endurtekning á upplýsingum sem
þegar hafa komið fram, það þarf ekki að ,,uppa" pósta á spjallborði sem ,,man"
hvað þú ert búinn að lesa og hvað ekki, þetta er ekki barnaland.
Ofnotkun broskalla
Broskallar eða líðanatákn eru mjög skemmtileg og hressandi viðbót við texta,
hafa ber þó í huga að of mikið af brosköllum í einu innleggi er leiðinlegt aflestrar,
sýnið náunganum tilitsemi og sparið broskallana.
Of stórar undirskriftir
Ekki eru allir svo heppnir að vera með hraðvirka nettengingu, fyrir einstaklinga
sem eru með upphringi módem er mjög þreytandi að þurfa bíða og bíða
eftir að undirskriftir hlaðist inn, gott er því að takmarka stærð mynda sem
maður sýnir í undirskriftinni sinni. Í reglum Trítluspjallsins eru takmarkanir
á stærð undirskrifta til að spjallið hlaðist hraðar inn hjá spjallverjum. Sjá hér.
Feitletrun, hástafir, upphrópunarmerki og spurningamerki
Notið aðeins feitletrun til að leggja áherslu á eitthvað, ef maður skrifar heilar setningar
með feitletrun eða HÁSTÖFUM fær lesandi það á tilfinninguna að verið sé að öskra á hann.
Einnig eru mörg upprópunarmerki svipað og að öskra, 1-3 upphrópunarmerki er yfirdregið.
Titill Þráða
Reynið að hafa titil þráða eins lýsandi og hægt er, titlar eins og ,,HJÁLP!!!!” gefur ekki til kynna hvað þráðurinn inniheldur, betra er að orða titilinn nánar t.d. svona ,,Veikur smáhundur”.
Myndir í innleggjum
Mikilvægt er að minnka myndir áður en þær eru settar á netið til að birta á spjallvefnum. Ef þú kannt ekki að minnka myndir eða ert ekki með myndvinnsluforrit til þess er alltaf hægt að óska eftir hjálp frá öðrum spjallverjum. Til að vera kurteis er gott að hafa myndirnar ekki stærri en 450 pixla á lengd. Einnig er gott að vanda valið þegar myndir eru settar inn, margar myndir sem eru mjög líkar er þreytandi að skoða, einnig myndir með hálfu dýrinu inn á eða mjög óskýrar myndir. Á þessu spjallborði eru takmarkanir hvað má setja inn margar myndir í einu af hverju dýri. Sjá hér.
Tilvitnanir
Þegar vitnað er í innlegg er gott að athuga vel hvort tilvitnun hafi þegar verið til staðar í innlegginu.
Mjög þreytandi er að lesa innlegg sem tilvitnun inní tilvitnun er á staðnum.
Því er góð regla að þurrka út fyrri tilvitnunina úr innlegginu þínu
áður en þú ýtir á senda hnappinn.
Ráðleggingar
Þar sem þetta er gæludýraspjall er einstaklega mikilvægt að spjallverjar forðist að gefa ráð ef þeir hafa ekki langa og góða reynslu af viðkomandi dýrategund. Ef þú hefur ekki reynsluna en ert viss í þinni sök er gott að taka fram hvaðan þú fékkst þessar upplýsingar, frá dýralækni? Á vefsíðu? Þá hvaða vefsíðu? |
|
| Til baka efst á síðu |
|
 |
|
|
Þú getur ekki sent inn nýjann þráð á þennan umræðuflokk Þú getur ekki svarað þráðum á þessum umræðumflokki Þú getur ekki breytt innleggi þínu á þessum umræðumflokki Þú getur ekki eytt innleggjum þínum á þessum umræðumflokki Þú getur ekki tekið þátt í kosningum á þessum umræðuflokki
|
Powered by phpBB © 2001, 2005 phpBB Group
|